Afmæli Aðalheiðar Eysteinsdóttur

Skapti Hallgrímsson

Afmæli Aðalheiðar Eysteinsdóttur

Kaupa Í körfu

Iðandi mannlíf var í fyrrakvöld í Kjarnaskógi, hinu vinsæla útivistarsvæði Akureyringa, í blíðskaparveðri. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarkona stóð þar fyrir tveimur uppákomum, annars vegar grillveislu í tilefni fertugsafmælis síns og hins vegar opnaði hún myndlistarsýningu, af sama tilefni, og þær verða einmitt 40 sem hún opnar víðs vegar um heiminn á jafn mörgum dögum í tilefni afmælisins eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu. MYNDATEXTI: Arnar Elfar var einn fjölmargra sem skoðuðu listaverk Aðalheiðar í fyrrakvöld. Hann sagðist ekkert óttast að svanurinn flygi með sig á brott!

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar