Breiðablik-Stjarnan 5:2

Arnaldur Halldórsson

Breiðablik-Stjarnan 5:2

Kaupa Í körfu

BREIÐABLIK sigraði Stjörnuna í nágrannaslag á Kópavogsvelli í gærkvöldi, 5:2, í lokaleik fyrri umferðar efstu deildar kvenna. Breiðablik er nú í fjórða sæti deildarinnar en Stjarnan í því fimmta, níu stigum á eftir Breiðabliki. Elín Anna Steinarsdóttir, framherji Breiðabliks, átti stórleik í gær og skoraði fjögur mörk. MYNDATEXTI. Elín Anna Steinarsdóttir framherji Breiðabliks fór á kostum gegn Stjörnunni í gær og skoraði fjögur mörk. Hér hefur hún betur gegn Guðlaugu S. Gunnarsdóttur varnarmanni Stjörnunnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar