Gustur

Árni Torfason

Gustur

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er mikið að gerast á markaðnum og þetta er því heppilegur tími til þess að opna nýja fasteignasölu. Okkur hefur líka verið tekið sérlega vel. Fasteignasalan fer því mjög vel af stað og við erum full af bjartsýni. Þannig komst Svanur Jónatansson, sölustjóri hjá fasteignasölunni Húseign, að orði í viðtali við Morgunblaðið. MYNDATEXTI: Eigendur og framkvæmdastjórar byggingarfyrirtækisins Gusts, þeir Guðmundur Franklin Jónsson og Jón Gísli Þorgilsson. Myndin er tekin fyrir framan fjölbýlishúsið Hlynsölum 2 í Kópavogi, en þar eru þeir félagar langt komnir með að reisa fjölbýlishús með 24 íbúðum, sem eru til sölu hjá Húseign. Íbúðirnar eru ýmist 3ja eða 4ra herb. Verð á 3ja herb. íbúðunum er 14,6 millj. kr. og á 4ra herb. íbúðunum er það 17,5 millj. kr., en íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar