Jóhann Briem

Ólafur K. Magnússon
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jóhann Briem

Kaupa Í körfu

Í greininni Kona listamannsins, sem birtist í Lesbók 13. júlí 2002, var lagt upp með orð Björns Th. Björnssonar í sjónvarpsþættinum Maður er nefndur, þar sem hann talaði um listamenn og lífsbjörg þeirra; eiginkonuna, sem hann sagði að ætti skilið stærri hlut í íslenzkri menningarsögu en verið hefur. Hér verður ýtt úr annarri orðavör Björns; í yfirlitsriti hans um íslenzka myndlist á 19. og 20. öld; "Íslenzkum listamönnum hefur löngum orðið fengsælt til hjúskapar á náms- og dvalarárum sínum erlendis. Við liggur að fara megi kóngaröðina og sjá erlenda eiginkonu við hvers manns hönd, - Einars Jónssonar, Jóns Stefánssonar, Kjarvals, Schevings, Þorvalds, Jóns Engilberts, Jóhanns Briem, Sigurjóns, Eggerts, Sveins, Guðmundar frá Miðdal..." MYNDATEXTI: Jóhann Briem

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar