Lilja og Helga - Handverkshús á Drangsnesi

Jenný Jensdóttir

Lilja og Helga - Handverkshús á Drangsnesi

Kaupa Í körfu

Féalgskonur í Kvenfélaginu Snót á Drangsnesi opnuðu um helgina handverkshús á Drangsnesi. Það er mikið talað um að kvenfélög geri ekkert annað en að baka og baka. Þessi þjóðsögn á ekki við á Drangsnesi því þótt konur í Kvenfélaginu Snót séu vel liðtækar við baksturinn ef svo ber undir þá er þeim fleira til lista lagt. Þær festu kaup á leirbrennsluofni síðasta haust og stóðu fyrir leirnámskeiðum í vetur og opna nú handverkshús á Drangsnesi. MYNDATEXTI: Lilja Jónsdóttir og Helga Arngrímsdóttir í Galleríi Snót á Drangsnesi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar