Sjálfsbjargarheimilið við Hátún

Jim Smart

Sjálfsbjargarheimilið við Hátún

Kaupa Í körfu

Sjálfsbjargarheimilið 30 ára Í DAG eru liðin þrjátíu ár síðan fyrstu íbúar Sjálfsbjargarheimilisins við Hátún fluttu inn. Þar með lauk langri baráttu Sjálfsbjargar fyrir húsnæði fyrir félagsmenn sína. Umræður um byggingu vinnu- og dvalarheimilis fyrir fatlaða hófust þegar á stofnþingi Sjálfsbjargar árið 1959. Á þeim tíma var sérsniðið hús fyrir fólk í hjólastól óþekkt hugtak á Íslandi. Fyrsta skóflustungan að húsinu við Hátún 12 var tekin árið 1966, og húsið vígt árið 1973. Alla tíð síðan þá hefur þjónusta í húsinu verið aukin og hún bætt. Nú er rými fyrir 39 íbúa á heimilinu. MYNDATEXTI: Sjálfsbjargarhúsið er 30 ára um þessar mundir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar