Fornleifar á Blönduósi

Jón Sigurðsson

Fornleifar á Blönduósi

Kaupa Í körfu

ÞÆR Snædís Sigurjónsdóttir og Ingibjörg Signý Aadnegard fundu bein og gamalt vasaúr þegar þær voru að þrífa beð vestan við kirkjugarðinn á Blönduósi. Þær stöllur, sem eru í vinnuskólanum á Blönduósi, voru ákveðnar í því að hér væri um merkilegan fund að ræða. Ekki voru samt allir á því að hér væri um sögulegan atburð að ræða en engu að síður jók þessi fundur stúlknanna áhuga þeirra á beðahreinsun og skógarþröstur sem á sér hreiður í nágrenninu var vinnuframlagi stúlknanna ákaflega þakklátur því framboð á ánamöðkum jókst stórlega.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar