SS styrkir Félag krabbameinssjúkra barna

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

SS styrkir Félag krabbameinssjúkra barna

Kaupa Í körfu

SLÁTURFÉLAG Suðurlands afhenti á laugardag Styrktarfélagi krabbameinssjúka barna styrk að upphæð rúmlega 1,6 milljónir króna. Sláturfélagið hefur áður stutt við bakið á félaginu en Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna styður börn að 18 ára aldri sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra en árlega greinast 10-12 börn á landinu öllu með krabbamein. MYNDATEXTI: Það var Páll Lýðsson, stjórnarformaður Sláturfélags Suðurlands, sem afhenti Rósu Guðbjartsdóttur, framkvæmdastjóra Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, styrkinn. Til hægri við þau stendur Hallgrímur Hólmsteinsson, markaðs- og sölustjóri SS. Athöfnin fór fram í Nauthólsvík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar