Þorvaldur Þorvaldsson

Árni Torfason

Þorvaldur Þorvaldsson

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er misjafnt hvernig fólk nýtir góðvirðisdaga sumarsins. Þorvaldur Þorvaldsson notar tímann í að gróðursetja í kringum sumarbústaðinn sinn, Heiðarland. Þorvaldur byggði bústaðinn sjálfur fyrir rúmum 30 árum en hann á landið í kring sem er um þrír hektarar. Með árunum hefur hann grætt upp landið og í kringum bústaðinn eru sprottin hin myndarlegustu tré. Þegar Morgunblaðið bar að garði var Þorvaldur í óðaönn að setja niður plöntur en að hans eigin sögn gerir hann það með gamla laginu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar