Héðinsfjarðargöng

Halldór Þ. Halldórsson

Héðinsfjarðargöng

Kaupa Í körfu

Í TILEFNI þess að útboðsgögn vegna jarðgangagerðar um Héðinsfjörð voru send til framkvæmdaaðila nú á miðvikudag, boðaði Samgangur sem er félag áhugamanna um bættar samgöngur á Tröllaskaga, til samkomu í Skútudal í Siglufirði undir yfirskriftinni "neglum jarðgöngin niður". En fyrirhugaður munni jarðganganna er í Skútudal. Forsvarsmenn Samgangs festu síðan niður skilti í með áletruninni "Héðinsfjarðargöng" nærri þeim stað sem fyrirhugaður munni jarðganganna verður að viðstöddum fjölda fólks sem lagði leið sína í Skútudalinn í mikilli veðurblíðu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar