Nýir bílar á Hellissandi

Nýir bílar á Hellissandi

Kaupa Í körfu

EFTIR Hraunásnum á Hellissandi, fyrir framan heimili fréttaritara, brunuðu tveir sérkennilegir kassabílar á dögunum. Mikill stærðarmunur var á bílunum. Á öðrum bílnum sat hópur krakka en á hinum komst ekki fyrir nema einn, bílstjórinn, og var hann samt nokkuð drjúgur með sig. Það var líka aldeilis mikill völlur á krökkunum á stærri bílnum. Þetta voru heimasmíðuð farartæki sem krakkarnir höfðu smíðað með góðri aðstoð feðra sinna. Ferðafólkið gaf sér rétt tíma til að láta mynda sig. Síðan var haldið af stað í sýningarferð um næstu götur. Frá vinstri á myndinni eru Hilmar Antonsson, Arkadiusz Lakomski, Mohamed S. Mohamed, Véný Viðarsdóttir, Ragnar Ólsen, Óskar Kristjánsson, Albert Jónsson, Mari Chan Ful Cajes og Unnur Sigþórsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar