Þróttur - Fram 2 : 1

Jim Smart

Þróttur - Fram 2 : 1

Kaupa Í körfu

ÞRÓTTARAR eiga vel skilið að tróna í efsta sæti Landssímadeildarinnar í knattspyrnu en nýliðarnir lögðu Framara, 2:1, á sameiginlegum heimavelli félaganna í Laugardalnum í gær. Björgólfur Takefusa, heitasti leikmaður deildarinnar, var enn og aftur hetja Þróttara. Hann krækti í vítaspyrnu sem Sören Hermansen jafnaði metin úr og skoraði svo sigurmarkið með glæsilegum hætti en öll mörk leiksins litu dagsins ljós í fyrri hálfleik. MYNDATEXTI. Þróttarinn Björgólfur Takefusa snéri oft á varnarmenn Fram í gær og hér reynir Eggert Stefánsson að stöðva Björgólf.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar