HULK bíll

Jim Smart

HULK bíll

Kaupa Í körfu

SVEINBJÖRN Sveinbjörnsson Keflvíkingur er eins og bræður hans tveir áhugamaður um gamla BMW-bíla. Hann hefur undanfarin þrjú ár nostrað við einn slíkan, árgerð 1977, og fékk bræður sína, sem eru bílamálarar, til að sprauta bílinn fyrir sig fallega sægrænan. "Síðan, þegar þeir sprauta hann loksins, þá breyta þeir litnum til að stríða mér," segir Sveinbjörn. Útkoman varð eins og sjá má á myndinni; bíllinn varð alllangt frá því að vera sægrænn og þess í stað æpandi eiturgrænn. MYNDATEXTI. Allsérstæður litur og áberandi: Sveinbjörn Sveinbjörnsson á bílnum góða og hann tekur ekki nærri sér hrekk bræðra sinna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar