Sigurður og Alexander

Arnaldur Halldórsson Sími 893-1353

Sigurður og Alexander

Kaupa Í körfu

MARGT er það sem æskan dundar sér við og gamlir leikir öðlast nýtt líf með nýjum kynslóðum. Ófáir eiga minningar frá harki upp við húsvegg og enn í dag leika krakkar sér að því að harka með krónupeninga. En nú hafa marglitir Drakkókarlar (Dracco) rutt sér til rúms í harkinu og þá gilda sömu gömlu reglurnar - þótt tilbrigði þróist vissulega innan ólíkra hópa. /Þeir bekkjarbræður og vinir, Alexander Örn Júlíusson og Sigurður Stefán Flygenring, eiga hvor um sig þónokkuð safn af Drakkókörlum og Sigurður á auk þess nokkra Jojo's-karla sem hann keypti sér á ferðalagi í Frakklandi í fyrrasumar. MYNDATEXTI: Alexander býr sig undir að skjóta tappa á milli tveggja annarra og ætlunin er að hitta í markið sem Sigurður hefur búið til með fingrunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar