Dýrbítur

Atli Vigfússon

Dýrbítur

Kaupa Í körfu

REFUM hefur fjölgað í Þingeyjarsýslu og finnast mun víðar en fyrir nokkrum árum. Þeir leita víða fanga og nýlega var Gunnar Óli Hákonarson refaskytta á ferð í landi Þeistareykja, nánar tiltekið við Eyjólfshæð, þar sem hann kom að greni og fann lifandi lamb sem var illa farið, bitið og tætt, en þó enn lifandi. Þetta var ófögur sjón og tókst Gunnari Óla að ná fjórum dýrum og kom þá í ljós að þetta voru shadow-refir en það eru dýr sem hafa sloppið úr búrum og aðlagast íslensku umhverfi. MYNDATEXTI. Gunnar Óli Hákonarson refaskytta með feng sinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar