Fíkniefnalögreglan - fíkniefnaleit

Jim Smart

Fíkniefnalögreglan - fíkniefnaleit

Kaupa Í körfu

Fíkniefnalögreglan flytur inn þrjá hunda til þess að starfa við fíkniefnaleit NÝLEGA flutti tollgæslan inn þrjá fíkniefnaleitarhunda til landsins og verða þeir notaðir hjá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli og í Reykjavík eftir þjálfun þeirra og umsjónarmanna þeirra sem nú stendur yfir. Fyrir er einn fíkniefnahundur á Keflavíkurflugvelli og tveir í Reykjavík en umsjónarmaður annars þeirra ætlar að hætta með hundinn í haust. Rolf A. von Krogh, yfirmaður hjá tollgæslunni í Noregi og námskeiðshaldari hjá Metropolitan-lögreglunni í London, fékk hundana í London í byrjun árs og hefur síðan þjálfað þá í Noregi, en er nú með námskeið fyrir þá og umsjónarmenn þeirra hérlendis. ...................... Ester Pálmadóttir, sem er með fíkniefnaleitarhund á Keflavíkurflugvelli, er honum til aðstoðar og verður umsjónarmönnum hundanna innan handar í framhaldinu, en hún er eini Íslendingurinn sem hefur lokið leiðbeinendanámi með prófi í þessum fræðum hjá Metropolitan-lögreglunni í London MYNDATEXTI: Hundarnir þurfa mikla þjálfun en hún skilar miklum árangri við leit að fíkniefnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar