Haukar- Vestmannaeyjar bótbolti kvenna

Haukar- Vestmannaeyjar bótbolti kvenna

Kaupa Í körfu

ÞÓRA Reyn Rögnvaldsdóttir átti sannkallaðan stórleik í marki sameiginlegs liðs Þróttar/Hauka þegar liðið tók á móti ÍBV á Ásvöllum í gær, en leikurinn var fyrsti leikur 9. umferðar Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu. Miðað við stöðu liðanna í deildinni hefðu ÍBV-stúlkur átt að eiga auðveldan leik fyrir höndum en barátta og vilji leikmanna Þróttar/Hauka var til mikillar fyrirmyndar og máttu Eyjastúlkur hafa verulega fyrir 3:0 sigri. MYNDATEXTI. Olga Færseth spyrnir knettinum að marki Þróttar/Hauka þar sem Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir markvörður og systurdóttir Olgu, Jóna Sigríður Jónsdóttir, eru til varnar og komu í veg fyrir að Olgu tækist að skora annað mark sitt í leiknum á Ásvöllum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar