Borgarstj. Reykjavíkur gegn bæjarstj. Akraness 4:3

Borgarstj. Reykjavíkur gegn bæjarstj. Akraness 4:3

Kaupa Í körfu

BORGARSTJÓRN Reykjavíkur sigraði bæjarstjórn Akraness með fjórum mörkum gegn þremur í æsispennandi opnunarleik götufótboltamóts Landsbankans sem fram fór í blíðskaparveðri að viðstöddu nokkru fjölmenni á Ingólfstorgi í gær. MYNDATEXTI. Nafnarnir Gísli Marteinn Baldursson varaborgarfulltrúi og Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, eigast hér við fyrir framan mark Skagamanna í opnunarleik götufótboltamóts Landsbankans á Ingólfstorgi í gær. Reykjavíkurliðið hafði nauman sigur á gestunum, 4-3, í æsispennandi leik. Í baksýn fylgist Magnús Guðmundsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, grannt með gangi mála.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar