Árekstur á Siglufirði

Halldór Þ. Halldórsson

Árekstur á Siglufirði

Kaupa Í körfu

ÖKUMAÐUR fólksbíls slasaðist í hörðum árekstri á Siglufirði í gær. Slysið átti sér stað rétt fyrir hádegið í gær, en tveir bílar rákust saman á gatnamótum Langeyrarvegar og Norðurtúns á Siglufirði. Fólksbíll sem kom eftir Langeyrarvegi úr suðurátt, skall á jeppa sem var kyrrstæður við gatnamótin, með þeim afleiðingum að jeppinn kastaðist nokkra metra og endaði á hliðinni. MYNDATEXTI: Báðir bílarnir eru gjörónýtir eftir áreksturinn sem var mjög harður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar