Þóra Helgadóttir

Arnaldur Halldórsson Sími 893-1353

Þóra Helgadóttir

Kaupa Í körfu

Er fædd árið 1979. Þóra er Reykvíkingur en nýflutt í Hafnarfjörðinn. Hún varð stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1999. Að því loknu vann hún sem uppeldisfulltrúi í Hofstaðaskóla í Garðabæ í einn vetur áður en hún hóf nám í hagfræði við Háskóla Íslands. Þóra útskrifaðist með BS próf í hagfræði frá HÍ síðastliðið vor og hlaut hæstu einkunn yfir viðskipta- og hagfræðideild, ágætiseinkunnina 9,0. Þóra hefur starfað í Landsbankanum á sumrin en starfar nú á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Hún er í sambúð með Birni Halldórssyni, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanni. MYNDATEXTI: Þóra Helgadóttir útskrifaðist með BS í hagfræði úr HÍ með einkunnina 9,0.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar