Ussss frumsýnd

(C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson

Ussss frumsýnd

Kaupa Í körfu

Fjölmenni á frumsýningu Ussss NÝ íslensk kvikmynd, Ussss - ekkert sérstaklega rómantísk gamanmynd, var frumsýnd í Háskólabíói á fimmtudagskvöld. Margt góðra gesta var við frumsýninguna og fékk myndin ágætar móttökur áhorfenda sem skemmtu sér vel yfir "skelfilega fyndnum" slysaskotum og misviturlegu ráðabruggi sögupersónanna sem enda á blóðugan máta. Það er Eiríkur Leifsson sem leikstýrir myndinni og er þetta fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd. Aðalhlutverkin eru í höndum Davíðs Guðbrandssonar og Jóns Marinós en einnig láta til sín taka í myndinni þau Sirrý Jónsdóttir, Felix Eyjólfsson, Þorsteinn Viðarsson, Baldur Bragason og Venus. MYNDATEXTI: Aðstandendur myndarinnar stilltu sér upp á sviðinu og voru hylltir af áhorfendum. Leikstjórinn Eiríkur Leifsson er lengst til vinstri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar