Beðið eftir hvölum í hvalaskoðun á Faxaflóa

Beðið eftir hvölum í hvalaskoðun á Faxaflóa

Kaupa Í körfu

HVALASKOÐUNARFERÐIR eiga mjög upp á pallborðið hjá ferðamönnum sem heimsækja Ísland og er þar um að ræða mikinn vaxtarbrodd í ferðaþjónustu landsmanna. Frá gömlu höfninni í Reykjavík leggja skip frá bryggju alla morgna að sumarlagi, með ferðamenn sem freista þess að berja skepnurnar augum. Hnísur, höfrungar og hrefnur skjóta gjarnan upp kollinum. Þó er sú upplifun glæsilegust þegar steypireyðurin, stærsta dýr jarðar, heilsar upp á forvitið mannfólkið. Það gerist þó ekki í hverri ferð, enda steypireyðar fágætar skepnur. Myndin er tekin í hvalaskoðunarferð á Faxaflóa. Hér bíða ferðamennirnir þess að hvalirnir láti sjá sig. EKKI ANNAR TEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar