Kleinuhringir frá Poppies

Arnaldur Halldórsson

Kleinuhringir frá Poppies

Kaupa Í körfu

HEILDVERSLUNIN Dreifing ehf. hefur byrjað innflutning og sölu á frosnum kleinuhringjum frá belgíska fyrirtækinu Poppies, en frystivörur frá því fyrirtæki hafa verið á markaði um langt skeið, segir í tilkynningu fá innflytjanda. Um er að ræða tvær bragðtegundir, annars vegar kleinuhringi með súkkulaði og hnetum og hins vegar með sykri. Í hverjum pakka eru sex kleinuhringir sem þiðna við stofuhita á mjög skömmum tíma. Fást þeir meðal annars í verslunum Hagkaupa, í Gripið og greitt og Fjarðarkaupum, að því er segir í tilkynningu. EKKI ANNAR TEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar