Fimleikar

Árni Torfason

Fimleikar

Kaupa Í körfu

ÞRJÁR stúlkur úr fimleikadeild Gróttu eru þessa dagana að undirbúa sig fyrir þátttöku á erlendum mótum í sumar. Sif Pálsdóttir, sem er Íslandsmeistari í áhaldafimleikum, mun taka þátt í heimsmeistaramótinu sem haldið verður í Anaheim í Kaliforníu í ágúst en þær Hera Jóhannesdóttir og Harpa Snædís Hauksdóttir eru á leið til Parísar þar sem Ólympíuleikar æskunnar verða haldnir í lok mánaðarins. MYNDATEXTI. Fimleikastúlkurnar sýndu listir sínar í fjörunni við Gróttu en áður fyrr voru fimleikar oft stundaðir í fjörum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar