Undirskrift Alcoa í Reyðarfirði

Ragnar Axelsson

Undirskrift Alcoa í Reyðarfirði

Kaupa Í körfu

Stríð stöðvar ekki áform Alcoa á Íslandi Alanin J.P. Belda, forstjóri og stjórnarformaður Alcoa, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki sjá neitt í stöðunni sem stöðvaði úr þessu þau áform fyrirtækisins að reisa álver hér á landi, ekki einu sinni stríð í Írak ef það skylli á, en skrifað var undir samninga um álverið á laugardag að viðstöddu fjölmenni í íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Michael Baltzell, framkvæmdastjóri hjá Alcoa, Alain Belda, forstjóri Alcoa, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra, Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. Að baki þeim eru Max Laun, lögmaður frá Alcoa, Philip Vogler túlkur og lögmennirnir Hjörtur Torfason, Gunnar Jónsson og Jón Sveinsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar