Bílvelta

Sigurður Sigmundsson Hrunamannahreppi

Bílvelta

Kaupa Í körfu

TVÍTUGUR maður meiddist í baki þegar bifreið hans fór út af Langholtsvegi og valt, til móts við Hrafnkelsstaði í Hrunamannahreppi snemma í fyrrinótt. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi missti maðurinn stjórn á bíl sínum á malarveginum með þessum afleiðingum. Eins og sjá má á myndinni er bíllinn illa farinn eftir veltuna. Vegurinn er mjög holóttur, en ekki liggur fyrir hvort það átti þátt í slysinu. ENGINN MYNDATEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar