Gestalæti 2003
Kaupa Í körfu
KOMPANÍIÐ og Menningardeild Akureyrarbæjar standa sameiginlega að verkefninu "Gestalæti 2003", en það gengur út á það að blása nýju lífi í miðbæinn með allskonar uppátækjum sem líkja mætti við götuleikhús. Verkefni þetta er í höndum hóps af ungu fólki og hafa þau verið áberandi í miðbænum síðustu vikur. Ferðamenn jafnt sem heimamenn hafa skemmt sér yfir söngnum, trúðslátunum og öllu því sem þau hafa haft fram að færa. Ungmennin hafa jafnframt tekið á móti ferðamönnum sem koma til Akureyrar með þeim fjölmörgu skemmtiferðaskipum sem leggjast hér að bryggju þetta sumarið. Á daginn halda þau til í miðbænum, en þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferð sá hann til þeirra þar sem þau sváfu vært á torginu og varla hægt að segja að mikið fjör hafi verið í gangi í það skiptið.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir