Þór - Keflavík 2:2

Kristján Kristjánsson

Þór - Keflavík 2:2

Kaupa Í körfu

KEFLVÍKINGAR færðust feti nær sæti í efstu deild þegar þeir náðu jafntefli við Þór á Akureyri í gær. Reyndar eru enn sex umferðir eftir en fátt virðist geta stöðvað Keflvíkinga. Það eru helst Þórsarar sem hafa staðið í vegi fyrir þeim en Þórsarar hefðu þurft að endurtaka leikinn frá því í Keflavík fyrr í sumar og sigra til að festa sig í sessi í öðru sæti deildarinnar. Úrslit leiksins urðu 2:2. Fimm stig skilja liðin að en nú geta Víkingar laumað sér stigi uppfyrir Þórsara og í annað sætið, takist þeim að sigra Leiftur/Dalvík annað kvöld. MYNDATEXTI. Þórarinn Kristjánsson markaskorari Keflvíkinga sækir að Hlyni Birgissyni fyrirliða Þórs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar