Stígamót

Arnaldur Halldórsson Sími 893-1353

Stígamót

Kaupa Í körfu

FULLTRÚAR hljómsveitanna Í svörtum fötum, Land og synir og Sálin hans Jóns míns tóku við svifdiskum frá karlahópi Femínistafélags Íslands í gær. Á svifdiskunum stendur "Nauðgar vinur þinn?" en það er eitt af slagorðum Femínistafélagsins í baráttunni gegn nauðgunum. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu eru nauðganir ekki algengari um verslunarmannahelgi en hverja aðra helgi en hins vegar hafi umræðan þróast í þá átt að nauðganir hafa verið taldar eðililegur fórnarkostnaður útihátíða. Gegn þessu vill félagið sporna en þá er mikilvægt að karlar taki afstöðu til ofbeldisins þar sem 96-99% kynferðisofbeldismanna eru karlar. MYNDATEXTI. Arnar Gíslason og Hjálmar Sigmarsson afhentu í gær Jónsa, Hreimi og Guðjóni svifdiskana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar