Bindindisfélag íslenskra ökumanna

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Bindindisfélag íslenskra ökumanna

Kaupa Í körfu

BINDIDISFÉLAG ökumanna stóð í gær fyrir kynningu á umferðaröryggisverkefni sem félagið stendur fyrir um verslunarmannahelgina. Kynning á verkefninu fór fram á athafnasvæði Flytjanda við Klettagarða og var þar til sýnis bíll sem lent hafði í veltu á um 90 km hraða auk þess sem gestum var boðið að upplifa bílveltu af eigin raun í veltibíl félagsins. Einnig var hægt að setja upp "ölvunargleraugu" en sá sem setur þau upp upplifir umhverfið eins og maður með 1,5 prómill af áfengi í blóðinu. MYNDATEXTI. Skemmtikraftarnir í Smaladrengjum fengu að upplifa bílveltu í veltibíl Bindindisfélags íslenskra ökumanna í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar