Múm

Jim Smart

Múm

Kaupa Í körfu

HLJÓMSVEITIN múm hefur getið sér gott orð fyrir seiðandi tónlist sína bæði hér á landi sem erlendis og ber hæst plöturnar Yesterday was dramatic - Today is ok og Loksins erum við engin. Hljómsveitin hefur verið að undanförnu að semja á Galtarvita og við æfingar að undirbúa sig fyrir tónleikaferðalag um heiminn. Kristín Anna Valtýsdóttir, Örvar Þóreyjarson Smárason og Gunnar Örn Tynes hafa notið aðstoðar trompetleikarans Eiríks Orra Ólafssonar, Ólafar Helgu Arnalds, sem spilar á víólu, gítar og syngur, og finnska trommuleikarans Samuli Kosminen að undanförnu og verður svo á tónleikaferðalaginu. MYNDATEXTI. Franska tökuliðið að störfum á æfingu hjá múm í Elliðaárdal.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar