Ægissíðan

Ægissíðan

Kaupa Í körfu

Ægissíðan er fallegur staður á sumarkvöldum og vinsæl til útivistar. Þar má gjarnan sjá ástfangin pör, skokkara, línuskautafólk og Göngu-Hrólfa af öllum stærðum og gerðum. Hjólreiðar meðfram strandlengjunni eru einnig sívinsælar og fóru þessi mæðgin ekki á mis við þá dýrmætu reynslu sem hjólreiðatúr úti í veðurblíðunni getur verið. Sá stutti virtist ekki vera langt frá þeim áfanga að sleppa öruggu skjóli hjálpardekkjanna og bruna óstuddur í gegnum lífið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar