Galtalækur 2003

Galtalækur 2003

Kaupa Í körfu

LANDSMENN fjölmenntu á útihátíðir vítt um landið um helgina og fóru veðurguðirnir mjúkum höndum um tjaldbúa. Um landið allt var veður ágætt en allt frá föstudegi fram á mánudag má segja að veður hafi hvergi orðið vont, þó kannski hafi gert létta gróðrarskúr á stöku stað. Þess á milli brosti sólin til sællegra hátíðargesta, annað en var síðustu verslunarmannahelgi sem var einhver sú vindasamasta og votasta í manna minnum. MYNDATEXTI. Í Galtalæk var, eins og á flestum stöðum, nóg af leiktækjum fyrir börnin. Það er alltaf jafnvinsælt að taka sér ærlega salíbunu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar