Sjöfn Har

Sjöfn Har

Kaupa Í körfu

EFTIR dvöl mína á Ítalíu í fyrra fóru persónur að gera vart við sig í málverkinu hjá mér. Ég hef verið að hugsa um þetta fólk í nokkur ár, og það var lengi rétt ókomið inn á myndflötinn - en nú er það komið," segir Sjöfn Har myndlistarmaður, sem segist þó eftir sem áður sjálfri sér lík í myndlistinni, þar sem íslenskt landslag er með í farteskinu, en pensilskriftin önnur. Sjöfn opnar sýningu á verkum sínum í nýju galleríi að Skólavörðustíg 25a kl. 20 á Menningarnótt fyrir gesti og gangandi. MYNDATEXTI: Sjöfn Har vann að lokafrágangi nýja gallerísins í gærdag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar