Landssímalóðin

Arnaldur Halldórsson Sími 893-1353

Landssímalóðin

Kaupa Í körfu

GATNAGERÐ er nú langt komin á svonefndri Landssímalóð í Grafarvogi og það styttist í að byrjað verði á fyrstu húsunum. Við Smárarima eru framkvæmdir að hefjast við fjórtán íbúðarhús úr timbri. Húsin verða á tveimur hæðum og frá 140 ferm. upp í 190 ferm. að stærð fyrir utan 35 ferm. bílskúr og er áætlað að verð pr. fermetra verði innan við 140 þús. kr. MYNDATEXTI: Gróin hverfi eru í kringum Landssímalóðina svonefndu og Tómas Ingólfsson segir það mikinn kost að öll þjónusta sé þegar til staðar í næsta nágrenni við nýbyggingasvæðið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar