Valur - IBV 3:1

Jim Smart

Valur - IBV 3:1

Kaupa Í körfu

ÞAÐ þurfti meira en mark ÍBV á fimmtu mínútu til að slá Valsstúlkur útaf laginu á Laugardalsvelli í gærdag - fimm mínútum síðar jafnaði Valur. Það var meira en Eyjastúlkur réðu við því Valsstúlkur náðu undirtökunum, bættu við tveimur mörkum og urðu sannfærandi bikarmeistarar í 3:1 sigri. Það er í níunda sinn eftir 14 tilraunir sem Valur hampar bikarnum en í fyrsta sinn sem Eyjastúlkur spreyta sig í úrslitaleik og það hafði jafnvel einhver áhrif þó innan raða ÍBV séu þrautreyndir leikmenn. Myndatexti: Helena Ólafsdóttir þjálfari Vals var ánægð að leikslokum. Hér fagnar hún bikarmeistaratitli með Kristínu Arnþórsdóttur aðstoðarþjálfara sínum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar