Hjólafólk

Þorkell Þorkelsson

Hjólafólk

Kaupa Í körfu

Heilsueflingarverkefnið "Hjólað í vinnuna" hófst formlega í gær og stendur út þessa viku. Um er að ræða samstarfsverkefni fjölda fyrirtækja og samtaka undir stjórn Íslands á iði, sem vekja á athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Átakið byggist á keppni milli fyrirtækja þar sem starfsfólk er hvatt til að hvíla bílinn og nota hjólið til að komast í vinnuna. Myndatexti: Starfsmenn Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddssen til í slaginn á hjólunum sínum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar