Lífrænt ræktaðar risanæpur

Guðrún Bergmann

Lífrænt ræktaðar risanæpur

Kaupa Í körfu

Í Matjurtargarðinum við Gistiheimilið Brekkubæ á Hellnum fer einungis fram lífræn ræktun matjurta. Sú ræktunaraðferð hefur skilað frábærri uppskeru undanfarin ár og séð gistiheimilinu fyrir grænmeti til salat- og súpugerðar frá miðju sumri og langt fram á haust. Næpurnar sem Jóhann Þóroddsson sáði fyrir í vor slá þó öll vaxtarmet. Þær sem hafa verið teknar upp undanfarna daga hafa vegið frá 1.1 kílói og upp í tæp 2 kíló hver. Myndatexti: Guðríður Hannesdóttir og Kristín Thieme með risanæpur úr lífræna matjurtagarðinum við Brekkubæ.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar