Borgarstjóri Winnipeg

Sverrir Vilhelmsson

Borgarstjóri Winnipeg

Kaupa Í körfu

Borgarstjóri Winnipeg, Glen Murray, kom til Reykjavíkur í opinbera heimsókn um síðustu helgi, og hljóp meðal annars þriggja kílómetra hlaup ásamt borgarstjóranum í Reykjavík í Reykjavíkurmaraþoninu. Á sunnudag var Árbæjarsafn meðal annars heimsótt og Gvendarbrunnar sömuleiðis. Á mánudag fór hann í skoðunarferð á Þingvelli, Gullfoss og Geysi. Glen Murray gaf sér stund í gær til að heimsækja aðsetur Samtakanna '78, og hitti þar að máli formann samtakanna, Þorvald Kristinsson, Hrafnkel Tjörva Stefánsson, framkvæmdastjóra samtakanna, og Baldur Þórhallsson dósent. Gáfu samtökin borgarstjóranum að gjöf eintak af heimildarmyndinni Hrein og bein með enskum texta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar