Samkomuhúsið á Akureyri
Kaupa Í körfu
MIKLAR endurbætur standa nú yfir á Samkomuhúsinu við Hafnarstræti, þar sem Leikfélag Akureyrar hefur aðsetur. Húsið er tæplega einnar aldar gamalt, var byggt í byrjun síðastliðinnar aldar og vígt 23. desember 1906. Smiðir hjá fyrirtækinu Virkni, sem sér um endurbætur á húsinu, segja ákaflega gaman að sinna verkinu enda ekki á hverjum degi sem menn komist í slíka "veislu", að þeirra sögn. "Yngri smiðirnir hafa til dæmis aldrei séð svona lagað," sagði einn reyndari karlanna í hópnum, Númi Adolfsson, þegar hann sýndi blaðamanni innan í turn hússins eftir að klæðning hafði verið rifin utan af honum í gær. "Hann er átthyrningur og stífaður inn í miðjuna," sagði Númi, og smiðunum bar saman um að starfsbræður þeirra sem að verkinu komu á öndverðri liðinni öld hefðu verið afar vandvirkir og flinkir. MYNDATEXTI. Horft upp úr turninum og til himins. Á milli átthyrndra sperranna sést í Núma Adolfsson, einn smiðanna hjá Virkni sem vinna að endurbótunum.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir