Landsliðið

Landsliðið

Kaupa Í körfu

Ríkharður Daðason, Bjarni Guðjónsson og Hjálmar Jónsson koma allir inn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu á ný eftir mislanga fjarveru. Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson tilkynntu í gærkvöld 20 manna hóp fyrir leikinn mikilvæga gegn Þjóðverjum í Hamborg næsta laugardag og munu þremenningarnir leysa af hólmi þá Heiðar Helguson og Lárus Orra Sigurðsson, sem eru meiddir, og Jóhannes Karl Guðjónsson, sem tekur út leikbann. Myndatexti: Pétur Marteinsson er einn af þremur leikmönnum í landsliðshópnum sem tvísýnt er með vegna meiðsla. ( Undirbúningur íslenska knattspyrnulandsliðsins fyrir leikinn gegn Skotum í Glasgow. Pétur Marteinsson og Arnar Þór Viðarsson. ) KSÍ, landslið Íslands í knattspyrnu , fótbolti

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar