Valur - KA 2:2

Valur - KA 2:2

Kaupa Í körfu

Leikmenn beggja liða gengu hnípnir af leikvelli þegar Egill Már Markússon dómari flautaði til leiksloka á Hlíðarendavelli í leik Vals og KA í 16. umferð efstu deildar karla í gær. Leiknum lauk með sanngjörnu 2:2 jafntefli. Hvorugt liðanna sætti sig við jafntefli því bæði róa þau lífróður um að halda sæti sínu í efstu deild. Hart var tekist á og fengu tvö rauð spjöld að líta dagsins ljós áður en yfir lauk. Valsmenn verma sem fyrr botnsæti deildarinnar og KA-menn eru komnir í fallsæti. Myndatexti: Markaskorarar kljást á Hlíðarendavelli, Stefán Helgi Jónsson, Valsmaður, og Hreinn Hringsson, leikmaður KA, eigast við. Matthías Guðmundsson, Val, fylgist grannt með.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar