Grindavík - KR 1:3

Jim Smart

Grindavík - KR 1:3

Kaupa Í körfu

Mikill fögnuður braust út meðal stuðningsmanna KR eftir að ljóst varð að liðið var orðið Íslandsmeistari í knattspyrnu karla, en KR lagði í gær Grindavík á útivelli, 3:1. Á sama tíma tapaði Fylkir gegn ÍA, 1:0, en Fylkir gat eitt liða veitt KR keppni á lokaspretti Íslandsmótsins þar sem tveimur umferðum er ólokið og er KR sem stendur með 33 stig, en ÍA og Fylkir eru með 26 stig. Þetta er í 24. sinn sem KR verður Íslandsmeistari í karlaflokki og í fjórða sinn á s.l. fimm árum. Karlaliðið fylgdi þar með eftir árangri kvennaliðs félagsins sem varð Íslandsmeistari s.l. laugardag, annað árið í röð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar