Óhapp við Aðalstræti 16

Óhapp við Aðalstræti 16

Kaupa Í körfu

BETUR fór en á horfðist þegar bakkinn gaf sig undir afturhjólunum á þessum vörubíl, þar sem hann var að sturta af pallinum niður í gryfjuna á Aðalstræti 16 um síðustu helgi. Þórir Sigurðsson, bílstjóri vörubílsins, segir enga hættu hafa verið á ferðum og að bíllinn hafi stoppað sjálfur rétt í þann mund þegar ljósmyndari smellti af. "Það seig bara niður undan honum en hann stoppaði bara af sjálfu sér. Það var engin hætta á ferðum, hann hefði aldrei getað farið aftur fyrir sig. Þetta var mjög óvenjulegt atvik, ég hafði nógan tíma á meðan bíllinn var að renna til að hugsa hvað ég ætti að gera." Vörubíllinn var svo dreginn upp af öðrum bíl, á meðan grafan lyfti undir afturendann á honum. Pústið á honum skemmdist en að öðru leyti er bíllinn lítið skemmdur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar