AMÍ á Akranesi

Sigurður Elvar

AMÍ á Akranesi

Kaupa Í körfu

HÁPUNKTUR sumarsins hjá sundfólki af yngri kynslóðinni var um helgina á Akranesi þar sem aldursflokkameistaramót Íslands, AMÍ, fór fram í Jaðarsbakkalaug. Lið Sundfélags Hafnarfjarðar gaf tóninn strax á fyrsta keppnisdegi er liðið náði efsta sætinu í stigakeppni liða sem sendu keppendur á mótið og er skemmst frá því að segja að SH leit aldrei um öxl og sigraði með nokkrum yfirburðum í heildarstigakeppninni og fékk 1628 stig. Íþróttabandalag Reykjanesbæjar, ÍBR, varð í öðru sæti með 1331 stig en baráttan um þriðja sætið var nokkuð hörð þar sem lið Ægis hafði betur í rimmu sinni gegn liði heimamanna, ÍA, en Ægir fékk 973 stig en ÍA 818 stig. MYNDATEXTI. Þegar stund gafst á milli stríða settist sundfólkið niður til þess að næra sig á vatnsmelónu sem forráðamenn liðsins buðu uppá í tjaldi við sundlaugarbakkann og safna kröftum fyrir næstu grein. Þau eru: Ólöf Ósk Johnsen, Konráð Hrafnkelsson og Hildur Sigþórsdóttir úr SH.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar