Helga Þórunn Harðardóttir

Skapti Hallgrímsson

Helga Þórunn Harðardóttir

Kaupa Í körfu

HELGA Þórunn Harðardóttir, 17 ára Akureyringur, telur sig heppna að vera á lífi eftir að hún ók bíl sínum út af veginum í Langadal seint síðastliðið sunnudagskvöld. Talið er að slysið hafi átt sér stað um kl. 22 en Helga Þórunn vaknaði undir morgun og áttaði sig þá á því að hún hafði hreiðrað um sig í aftursætinu og sá að vinstri höndin, sem er brotin, var í fatla; hún hafði útbúið fatla úr náttbuxunum sínum en man reyndar ekki eftir að hafa gert það. Einnig sagðist hún hafa velt því fyrir sér hvað í ósköpunum hefði komið fyrir bílinn. Hann er talinn ónýtur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar