Guðmundur Þorgrímsson

Steinunn Ásmundsdóttir

Guðmundur Þorgrímsson

Kaupa Í körfu

Breytingar í nýju sveitarfélagi Búða- og Stöðvarhrepps KOSIÐ verður um nýja sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi Búða- og Stöðvarhrepps 20. september nk. Þá verður einnig kosið um nafn á hið nýja sveitarfélag. Eins og gengur hafa verið deildar meiningar um hvort sameiningin væri hreppunum til hagsbóta og menn einkum tilgreint bága fjárhagsstöðu Stöðvarhrepps í því sambandi. Búðahreppur hefur hins vegar verið að ná sér á strik fjárhagslega eftir örðugleika vegna byggingar íþróttamannvirkja í bænum. MYNDATEXTI: Guðmundur Þorgrímsson, oddviti Fáskrúðsfirðinga, segir sameininguna við Stöðvarhrepp jákvæða og gefa mikla möguleika.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar