Helgi Hermannsson

Sverrir Vilhelmsson

Helgi Hermannsson

Kaupa Í körfu

Íslenska sjónvarpsfélagið hf., sem rekur Skjá einn, hefur formlega útsendingar á nýrri rás, Skjá tveimur, hinn 1. október næstkomandi. Ólíkt Skjá einum, sem er opin auglýsingastöð, verður Skjár tveir áskriftarstöð án auglýsinga. Helgi Hermannsson, dagskrár- og markaðsstjóri, sagði næstu áform miðast að því að gleðja íþróttaáhugamenn þessa lands enda telja forráðamenn félagsins góðar líkur á því að þeir nái sjónvarpsrétti enska boltans og margra stórmóta í golfi. MYNDATEXTI: Íslenskt raunveruleikasjónvarp verður meðal þess sem í boði verður á Skjá tveimur að sögn Helga Hermannssonar, dagskrár- og markaðsstjóra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar