Stjórnarfundur SÍF

Stjórnarfundur SÍF

Kaupa Í körfu

FRIÐRIK Pálsson og Friðrik Jóhannsson sögðu af sér í stjórn SÍF á stjórnarfundi í félaginu í gær. Friðrik Pálsson lætur því af formennsku stjórnarinnar og hverfur jafnframt úr stjórnum þeirra dótturfyrirtækja SÍF sem hann hefur setið í. Ástæða uppsagnar þeirra er sú að þeir hluthafar sem þeir sátu fyrir í stjórninni hafa nú selt allan sinn hlut í SÍF. Ólafur Ólafsson, varaformaðurs stjórnar, tekur nú við formennsku. MYNDATEXTI: Frá stjórnarfundi SÍF í gær. Fremst á myndinni er Friðrik Pálsson, sem sagði af sér sem formaður SÍF í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar