Axels Andréssonar minnst

Jim Smart

Axels Andréssonar minnst

Kaupa Í körfu

FULLTRÚARÁÐ Knattspyrnufélagsins Víkings afhjúpaði nýlega legstein í Fossvogskirkjugarði, til minningar um Axel Andrésson, frumkvöðul í íslenskri knattspyrnu. Axel stofnaði Víking ásamt nokkrum ungum piltum 21. apríl 1908. Hann var fyrsti formaður félagsins. Þá var hann leikmaður félagsins og þjálfari, auk þess að gegna dómarastörfum. Um árabil ferðaðist Axel um landið og kenndi knattspyrnu eftir kerfi sem við hann var kennt. Axel bjó um tíma á Akranesi og þjálfaði þar unga knattspyrnumenn. Viðstaddir athöfnina voru stjórn fulltrúaráðs, heiðursfélagar, gamlir formenn og ættingjar Axels. Að athöfn lokinni var móttaka í Víkinni. EKKI ANNAR TEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar